Chrome OS viðbót fyrir innsláttartól Google

Chrome OS viðbótin fyrir innsláttartól Google gerir þér kleift að skrifa á því tungumáli sem þú kýst í Chrome OS.

Meginmunurinn á þessari Chrome OS viðbót og Chrome viðbótinni fyrir innsláttartól Google:

Eiginleiki Chrome viðbót Chrome OS viðbótin
Studd kerfi Chrome vafri í hvaða tölvu sem er (Windows, Mac, Linux) Aðeins Chrome OS tölvur
Virkar í veffangastikunni (innsláttarreitnum)? Nei Já
Virkar án nettengingar? Nei Já

Innsláttartól fylgja Chromebook-tölvum. Ef þú notar Chromebook með útgáfu 28 eða nýrri geturðu notað innsláttartólin strax. Annars skaltu uppfæra Chromebook. Ef þú notar Chromium OS skaltu setja upp Chrome OS viðbótina sem fæst í vefverslun Chrome.

Veldu Settings → Show advanced settings → Languages. Smelltu á hnappinn „Language and input settings“. Veldu síðan það innsláttartól sem þú vilt nota. Athugaðu að innsláttaraðferðir sem merktar eru [Heiti tungumáls á móðurmáli] ([Heiti tungumáls á völdu viðmótstungumáli Chrome]), t.d. हिन्दी (hindí), standa fyrir umritunaraðferðir. Umritunartól breyta innslættinum í markmál samkvæmt hljóðritun.

Eftir grunnstillingu skaltu kveikja á þeirri innsláttaraðferð sem þú vilt nota. Smelltu á innsláttaraðferðina sem er í notkun, t.d. „IS“, á ræsisvæðinu (þ.e. tilkynningastikunni/-svæðinu neðst til hægri á skjánum).

Listi yfir valdar innsláttaraðferðir (þ. á m. innsláttaraðferðir viðbótarinnar) birtist. Veldu innsláttartólið sem þú vilt nota. Smelltu á „Customize languages and input...“ til að bæta nýrri innsláttaraðferð við.

Nú þegar þú hefur valið innsláttartól skaltu færa bendilinn í einhvern innsláttarreit (veffangastika vafrans er einnig studd) og byrja að skrifa.

Tengdar greinar um notkun tiltekinna innsláttartóla: