Viðbót Chrome fyrir innsláttartól Google
Viðbót Chrome fyrir innsláttartól Google gerir notendum kleift að nota innsláttartól á hvaða vefsíðu sem er í Chrome. Fylgdu þessum skrefum til að nota Chrome viðbótina fyrir innsláttartól:
- Settu upp innsláttartól Google
- Smelltu á tákn viðbótarinnar
og veldu „Extension options“
- Á síðunni „Extension options“ skaltu velja innsláttartólið sem þú vilt frá vinstri til hægri.
- Tvísmelltu vinstra megin til að bæta innsláttartóli við. Tvísmelltu hægra megin til að fjarlægja val.
- Raðaðu völdum innsláttartólum með því að smella á innsláttartól hægra megin og smella
á táknin
og
.
Til að nota innsláttartól smellirðu á tákn viðbótarinnar. Veldu síðan innsláttartól af
fellivalmyndinni sem birtist. Þegar kveikt er á innsláttartóli birtist hnappur
viðbótarinnar í fullum lit, t.d.
. Þegar slökkt er á
innsláttartóli gránar hnappurinn
. Ef þú smellir á „Turn off“ verður
slökkt á innsláttartólinu. Þú getur líka smellt á valin innsláttartól til að kveikja og
slökkva á þeim.
Nú þegar þú hefur kveikt á innsláttartóli skaltu opna vefsíðu, færa bendilinn í
innsláttarreitinn og byrja að skrifa. Ef það virkar ekki skaltu endurhlaða vefsíðuna með
því að smella á
.
Tengdar greinar um notkun tiltekinna innsláttartóla:
innsláttartól