Sýndarlyklaborð

Sýndarlyklaborð eða skjályklaborð gerir þér kleift að skrifa beint með letri þíns tungumáls á einfaldan hátt, hvar sem þú ert og hvaða tölvu sem þú notar. Algengt er að sýndarlyklaborð sé notað til að:

Sýndarlyklaborðið nær til fleiri en 100 lyklaborða fyrir yfir 70 tungumál. Skoðaðu þetta kennslumyndband til að læra að nota sýndarlyklaborð. Þú getur einnig prófað þetta á netinu.

Til að nota sýndarlyklaborð þarf fyrst að kveikja á innsláttartólum. Fylgdu leiðbeiningunum til að gera innsláttartól virk í leit, Gmail, Google Drive, YouTube, Translate, Chrome og Chrome OS.

Sýndarlyklaborð eru táknuð með lyklaborðstákni . Smelltu á táknið til að kveikja eða slökkva á valinni insláttaraðferð eða á örina við hlið þess til að velja annað innsláttartól. Þegar kveikt er á sýndarlyklaborði dökknar grái litur hnappsins .

Notaðu sýndarlyklaborðið með því að skrifa á eigið lyklaborð eins og það sé sýndarlyklaborðið eða með því að smella beint á lykla sýndarlyklaborðsins með músinni.

Til að fella saman skjályklaborðið smellirðu á örina efst til hægri á skjályklaborðinu.