Handskrift

Handskrift gerir þér kleift að skrifa orð beint með mús eða snertifleti. Handskrift styður fleiri en 50 tungumál.

Til að nota handskrift þarf fyrst að kveikja á innsláttartólum. Fylgdu leiðbeiningunum til að gera innsláttartól virk í leit, Gmail, Google Drive, YouTube, Translate, Chrome og Chrome OS. Athugaðu að handskrift á tilteknum tungumálum er hugsanlega ekki í boði fyrir sumar vörurnar hér að ofan.

Horfðu á þetta kennslumyndskeið til að læra að nota handskrift í Chrome viðbótinni fyrir innsláttartól Google.

Innsláttur með handskrift er táknaður með blýanti .Þegar handskrift er notuð skaltu færa bendil músarinnar/snertiflatarins á handskriftarsvæðið. Haltu músarhnappinum/snertifletinum inni til að skrifa stafi. Tillögur að stöfum sem samsvara handskriftinni birtast. Veldu tillögu með því að smella á stafinn eða ýttu á ENTER eða BIL á lyklaborðinu til að velja fyrstu tillöguna.