Gmail

Kíktu á þetta myndskeið til að fá skyndikennslu í að setja upp innsláttartólin í Gmail.

Fylgdu þessum skrefum til að gera innsláttartólin virk í Gmail:

  1. Smelltu á tannhjólstáknið efst til hægri og veldu síðan „Stillingar“.
  2. Á flipanum Almennt skaltu haka við gátreitinn við hlið „Virkja innsláttartól“ í hlutanum „Tungumál“.
  3. Í stillingaglugganum „Innsláttartól“ sem birtist skaltu velja það innsláttartól sem þú vilt í hlutanum „Öll innsláttartól“ og smella á gráu örina svo það færist yfir á svæðið „Valin innsláttartól“.
    • Þú getur einnig tvísmellt á innsláttartólið til að bæta því við svæðið „Valin innsláttartól“
    • Þú getur endurraðað völdum innsláttartólum með því að smella á tól og síðan á upp- og niðurörvarnar sem birtast
  4. Smelltu á „Í lagi“ í stillingaglugganum
  5. Smelltu á „Vista breytingar“ neðst á flipanum Almennt

Þegar þú hefur kveikt á innsláttartólum birtist tákn fyrir innsláttartólin vinstra megin við tannhjólstáknið, t.d. .

Þessi bloggfærsla frá Gmail (einnig birt á bloggi Google og bloggi Google fyrir fyrirtæki) kynnir hvernig nota má innsláttartólin til að auðvelda samskipti á mismunandi tungumálum í Gmail.

Tengdar greinar um notkun tiltekinna innsláttartóla: