Viðbót Chrome fyrir innsláttartól Google

Viðbót Chrome fyrir innsláttartól Google gerir notendum kleift að nota innsláttartól á hvaða vefsíðu sem er í Chrome. Fylgdu þessum skrefum til að nota Chrome viðbótina fyrir innsláttartól:

  1. Settu upp innsláttartól Google
  2. Smelltu á tákn viðbótarinnar og veldu „Extension options“
  3. Á síðunni „Extension options“ skaltu velja innsláttartólið sem þú vilt frá vinstri til hægri.
  4. Tvísmelltu vinstra megin til að bæta innsláttartóli við. Tvísmelltu hægra megin til að fjarlægja val.
  5. Raðaðu völdum innsláttartólum með því að smella á innsláttartól hægra megin og smella á táknin uppör og niðurör.

Til að nota innsláttartól smellirðu á tákn viðbótarinnar. Veldu síðan innsláttartól af fellivalmyndinni sem birtist. Þegar kveikt er á innsláttartóli birtist hnappur viðbótarinnar í fullum lit, t.d. . Þegar slökkt er á innsláttartóli gránar hnappurinn . Ef þú smellir á „Turn off“ verður slökkt á innsláttartólinu. Þú getur líka smellt á valin innsláttartól til að kveikja og slökkva á þeim.

Nú þegar þú hefur kveikt á innsláttartóli skaltu opna vefsíðu, færa bendilinn í innsláttarreitinn og byrja að skrifa. Ef það virkar ekki skaltu endurhlaða vefsíðuna með því að smella á .

Tengdar greinar um notkun tiltekinna innsláttartóla: