Umritun
Boðið er upp á umritun fyrir fleiri en 20 tungumál. Horfðu á eftirfarandi myndskeið til að fræðast um umritun og hvernig hún er notuð. Þú getur einnig prófað hana á netinu.
Umritun vísar til þess að umrita úr einu ritunarkerfi í annað á grunni hljóðfræðilegra líkinda. Með þessu tóli geturðu slegið inn latneskt letur (a, b, c o.s.frv.) sem er síðan breytt í stafi sem eru bornir fram á svipaðan hátt á markmálinu. Með umritun á hindí geturðu t.d. slegið inn „namaste“ til að fá út „नमस्ते“ sem hljómar eins og „namaste“. Listi yfir tiltækar umritanir kann að birtast fyrir þig að velja úr. Athugaðu að „umritun“ er frábrugðin „þýðingu“; umritun er byggð á framburði en ekki merkingu.
Umritun styður ónákvæma hljóðfræðilega samsvörun. Þú getur einfaldlega skrifað inn bestu ágiskun þína um framburð með latnesku letri og umritun finnur bestu samsvarandi tillögur. Til dæmis myndi bæði „namaste“ og „nemaste“ fá útkomuna „नमस्ते“ sem samsvörun.
Til að nota umritun þarf fyrst að kveikja á innsláttartólum. Fylgdu leiðbeiningunum til að gera innsláttartól virk í leit, Gmail, Google Drive, YouTube, Translate, Chrome og Chrome OS.
Umritun er táknuð með staf úr tungumálinu, t.d.
. Smelltu á táknið til að kveikja
eða slökkva á valinni umritun eða á örina við hlið þess til að velja annað
innsláttartól. Þegar kveikt er á umritun dökknar grái litur hnappsins
.
Þegar þú notar umritun skaltu skrifa orðið inn samkvæmt framburði með latnesku letri. Á meðan þú skrifar birtist listi yfir möguleika sem samsvara hljóðrituninni. Þú getur valið orð af listanum með því að gera eitt af eftirfarandi:
- Ýta á BIL eða ENTER að velja fyrstu samsvörunina,
- smella á orð
- slá inn töluna við hliðina á orði,
- skoða listann yfir samsvaranir á síðu með örvalyklunum UPP og NIÐUR. Flettu síðunum með lyklunum PAGEUP/PAGEDOWN. Ýttu á BIL eða ENTER til að velja auðkennt orð.
innsláttartól