Yfirlit yfir eiginleika
Innsláttartól Google geta auðveldað þér að skrifa á því tungumáli sem þú vilt. Við bjóðum nú upp á nokkrar tegundir innsláttartóla fyrir texta:
- Innsláttaraðferðir (IME) tengja innsláttinn þinn við innslátt á öðru tungumáli með því að nota umbreytingarhugbúnað.
- Umritun breytir hljóðum/hljóðritun texta á tilteknu tungumáli yfir í texta sem best samræmist hljóðunum. Umritun breytir t.d. „namaste“ í „नमस्ते“ á hindí.
- Sýndarlyklaborð birtir lyklaborð á skjánum sem tengt er lyklunum á raunverulega lyklaborðinu þínu. Þú getur slegið inn beint á öðru tungumáli eftir því hvernig skjályklaborðið er sett upp.
- Handskrift gerir þér kleift að færa inn texta með því að teikna stafi með fingrunum. Sem stendur er handskrift aðeins í boði í Chrome viðbótinni fyrir innsláttartól Google.
Kynntu þér hvernig innsláttartól eru stillt í Google reikningsstillingunum.
Kynntu þér hvernig innsláttartól eru notuð í vörum Google, þ. á m. Gmail, Drive, leit, Translate, Chrome og ChromeOS.
Ef þú vilt prófa herlegheitin geturðu gert það á einfaldan hátt á kynningarsíðunni.
innsláttartól